Leit, val og ráðningar á stjórnendum

SAM Headhunting™ - Leiðandi í stjórnendaráðningum í Evrópu

SAM Headhunting Iceland

A part of the SAM Headhunting Group

Executive Search & Headhunting
Argentina · Australia · Austria · Bahrain · Belarus
Belgium · Cameroun · China · Czech Republic
Denmark · Finland · France · Germany · Greenland
Hungary · Iceland · India · Ireland · Italy · Kuwait · Luxembourg
Mexico · Netherlands · New Zealand · Norway
Poland · Qatar · Russia · Saudi Arabia · Slovakia
South Africa · Spain · Sweden · Switzerland · Taiwan
Ukraine · United Arab Emirates · United Kingdom · USA
 

SAM Headhunting™ leysir ráðningarverkefni með skilvirkum hætti

Á fáum árum hefur SAM International náð umtalsverðum árangri á sviði stjórnendaráðninga.
Fyrirtækið hefur mikla sérstöðu meðal ráðningarfyrirtækja.
SAM Headhunting hefur farið óvenjulegar leiðir og sýnt að aðferðir við stjórnendaráðningar eru góður kostur við leit, val og ráðningar á millistjórnendum, sérfræðingum auk ráðninga í æðstu stöður fyrirtækja.

SAM er nú leiðandi aðili á þessu sviði í Evrópu auk þess að hafa sótt inn á markaðinn í Kína, Austurlöndum fjær, Mið-austurlöndum og önnur valin svæði í heiminum.

SAM býður einfaldari og skilvirkari leið við leit að störfum og starfsfólki

Fjöldi og stærð auglýsinga í dagblöðum þar sem auglýst er eftir starfsfólki er dýr leið við leit að fólki.
Hinn mikli fjöldi starfsauglýsinga gæti bent til þess að mikill skortur væri á hæfu fólki Staðreyndin er önnur: það er nóg af hæfu fólki að leita sér að nýju starfi. Það þarf auðveldari leið til að tengja saman fyrirtæki og fólk í starfsleit.

Fjöldi fyrirtækja hefur áttað sig á því að starfsauglýsingar eru dýr leið til að auglýsa fyrirtækið.
Með beinni leit að fólki – “headhunting”, sem hingað til hefur verið stunduð eingöngu við leit að forstjórum, getur einnig hentað við leit að millistjórnendum, sölufólki, sérfræðingum osfrv.
Aðferðir SAM Headhunting™ byggjast á “headhunting” tengd við umfangsmikinn gagnagrunn og leitarkerfi.

SAM Headhunting™ er skilvirkt kerfi við leit að rétta starfinu og starfsfólkinu

SAM geymir í sínum stóra gagnagrunni upplýsingar um á annan tug þúsunda starfsfólks sem er í leit að nýju starfi.
Á stuttum tíma getum við komið á tengingu milli fyrirtækis í leit að starfsmanni og fólki með þekkingu, hæfni og eiginleika sem eru í samræmi við kröfur viðkomandi fyrirtækis og starfs.
Við aðstoðum fyrirtæki við leitina, frá því að setja hæfnis- og starfskröfurnar á blað til viðtals við “kandidata” og að lokum gerð tillagna að vali á réttum starfsmanni.

SAM Headhunting™: meiri árangur sem kostar minna!

Það kostar yfirleitt minna að fela SAM leitina að rétta starfsmanninum.

Fyrirtækið sem leitar starfsmanns þarf ekki að láta hanna auglýsingu, birta hana, taka á móti umsóknum, vinna úr þeim, boða í viðtöl, annast viðtölin, velja bestu umsækjendur og láta hina vita um niðurstöður.

SAM annast allt þetta, en sleppir dagblaðaauglýsingunni! Við notum einstakan gagnagrunn, vinnum faglega, hratt og hagkvæmt við leit að rétta starfinu og starfsmanninum.

 

Tengiliðalisti