SAM býður nýja og betri leið!
Ertu að leita að nýju starfi ? - Þá stendur þú frammi fyrir einni af stærstu
ákvörðunum lífs þíns.
Rétta starfið veitir þér svo margt. Auðvitað skipta launin máli, en góður
starfsandi, krefjandi starf, hvetjandi og skapandi starfsumhverfi er það sem
við leitum líka eftir í nýju starfi. Við viljum öll fá tækifæri til að vaxa og
þroskast í starfinu okkar og verða þannig verðmætari starfsmenn.
Að finna rétta starfið…..fyrir þig!
Þetta er vandasamt verk sem við hjá SAM getum auðveldað þér. Yfirleitt krefst
leitin að þú hafir mikla þekkingu á vinnumarkaðinum og vitir hvernig fyrirtækin
leita að rétta starfsfólkinu
Æ fleiri ráðningar eiga sér stað án auglýsinga í dagblöðum. Á sama tíma verður
netið vinsælla við starfsleitina. SAM nýtir sér kosti netsins ásamt hefðbundnum
aðferðum við leit að rétta starfinu svo sem viðtöl við umsækjendur og gerð
lýsinga á hæfniskröfum.
NETIÐ!
Á internetinu er fjöldi vefsvæða með gagnagrunna sem eru ætlaðir til
starfsleitar. SAM býður einn besta gagnagrunn á starfsleitar-markaðinum í dag.
Við hvetjum þig til að nýta þér okkar gagnagrunn og leitarkerfi.
Við bjóðum skilvirkt og hagkvæmt kerfi við starfsleit og starfsmannaleit.
Vinnumarkaðurinn breytist hratt – við fylgjumst vel með!
Þörfin fyrir sérfræðinga, fólk með sérþekkingu, góða starfsreynslu og
samstarfshæfni eykst stöðugt.
Við hjá SAM erum stöðugt að leita að nýju starfsfólki fyrir fyrirtæki sem eru að
leita að hæfasta fólkinu Notaðu SAM Headhunting™ sem nýja og skilvirka leit að
nýju og spennandi starfi. Við ábyrgjumst að umsókn þín og ferilskrá eru
meðhöndluð með ábyrgum hætti þar sem fyllsta trúnaðar er gætt.
Lausar stöður
Sendu okkur ferilskrá þína (CV)
|