SAM Headhunting er hópur fyrirtækja í Evrópu og víðar sem sérhæfir sig í leit,
vali og ráðningum á stjórnendum og sérfræðingum. Fyrirtækið hefur þegar opnað
skrifstofur í Asíu.
Verkefni fyrir alþjóðleg fyrirtæki
SAM var stofnað 1993. Fyrirtækið hefur tekið að sér fjölda verkefna fyrir
alþjóðleg fyrirtæki við leit að starfsfólki um allan heim. Hér á eftir er listi
yfir þau fyrirtæki sem SAM hefur þjónað. Listinn sýnir að SAM hefur starfað
fyirr fyrirtæki á flestum sviðum viðskipta.
Ráðningarverkefni SAM
Samstarfsaðilar í hverju landi
Stjórnunarmynstur SAM er mjög sérstakt. Í þeim löndum sem SAM starfar eru sett
upp sjálfstæð samstarfsfyrirtæki (“partnerships”) sem starfa á eigin forsendum
en nota stjórnunaraðferðir og alþjóðlegan gagnagrunn SAM
SAM fyrirtækin í hverju landi hafa að leiðarljósi eftirfarandi grunngildi:
Skilvirkni, hagkvæmni, sveigjanleika, fagmennska, gæði og virðingu fyrir
viðskiptavininum, bæði fyrirtækjunum sem leita að fólki, og einstaklingunum sem
eru að leita að nýju og áhugaverðu starfi.
Við hjá SAM vinnum ekki undir stóru skipuriti eða löngum boðleiðum: við erum
eldsnögg að laga okkur að nýjum aðstæðum og vinnum með sveigjanleika og hraða
að leiðarljósi.
SAM Headhunting Iceland Executive Search & Headhunting